● Gervigreindardeild í áskrift · GDPR-fylgni

Heil gervigreindardeild.
Kveikt með einum rofa.

Við komum með vélina, tengjum hana á þínum stað og kveikjum. Þá hefur vinnustaðurinn ritara, þýðanda, túlk, skjalavörð, fundarritara og vaktmann sem tala íslensku og senda aldrei eitt gagn úr landi. Engin fjárfesting í vélbúnaði, engin uppsetning hjá þér: eitt fast mánaðargjald og full GDPR-fylgni.

100%Gögnin innanlands
0 kr.Í vélbúnað: vélin fylgir
GDPRFull fylgni
50+Tungumál í þýðingu
ulf.local
ULF spjall með töflu í svari
Áskorunin

Erlend gervigreind sendir gögnin þín úr landi

Þegar starfsfólk notar erlend gervigreindartól á borð við ChatGPT eða Claude fara viðkvæm gögn úr landi til netþjóna í Bandaríkjunum. Bandarísku CLOUD-lögin geta skyldað bandarísk fyrirtæki til að afhenda yfirvöldum gögn, sem stangast á við kröfur GDPR. Fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir sem vinna með viðkvæm gögn er það óásættanleg áhætta.

Erlend skýjaþjónusta
  • Viðkvæm gögn fara úr landi til netþjóna erlendis
  • CLOUD-lögin geta þvingað fram afhendingu gagna til yfirvalda
  • Stangast á við kröfur GDPR um persónuvernd
  • Óásættanleg áhætta fyrir heilbrigðis- og lögfræðigögn
ULF: staðbundin lausn
  • Öll vinnsla fer fram á Ulf-vélinni hjá þér eða á íslenskum netþjónum
  • Engin gögn eða fyrirspurnir fara úr húsi
  • Full GDPR-fylgni og fullt forræði yfir gögnunum
  • Við rekum vélina, þú átt gögnin og forræðið yfir þeim
Hvers vegna ULF

Gervigreind á þínum forsendum

Gögnin innanhúss

Öll gögn og öll vinnsla eru á Ulf-vélinni hjá þér eða innanlands. Ekkert fer til þriðja aðila. Byggt fyrir heilbrigðis-, lögfræði- og fjármálagögn.

Íslenska í fyrirrúmi

Eigin líkön fínþjálfuð á íslensku, íslensk talgreining og fagorðasöfn fyrir læknisfræði og skattamál. Gæðin eru mæld í hverri útgáfu.

Allt á einum stað

Spjall, málastjórn, Vaktin, Flæði, skjala- og úrlausnaleit, þýðing, túlkur, fundir, upplestur og myndasköpun í einu viðmóti, tengt öðrum kerfum um API.

Sniðið að fagsviði

SOAP-nótur, ICD-10 og mismunagreining fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Úrlausnaleit og samningavakt fyrir lögfræðinga. VSK-yfirferð og áreiðanleikakönnun fyrir fjármál.

Deildin

Átta hlutverk, ein vél, einn rofi

ULF er ekki eitt spjallviðmót heldur heil deild sem vinnur úr gögnum vinnustaðarins allan sólarhringinn. Hvert hlutverk hér að neðan er tilbúið um leið og kveikt er.

Ritari

Skrifar og greinir

Samantektir, tímalínur, SOAP-nótur, ICD-10, mismunagreining og fjármálaúttektir með einu skástriki.

Skjalavörður

Man allt og vísar í heimildir

Skjalasöfn, mál í Hvelfingu og úrlausnasöfn með svörum sem vísa í skjal og blaðsíðu.

Vaktmaður

Fylgist með málum og frestum

Vaktin metur skilyrði á mannamáli, Samningavakt minnir á fresti í samningum með fyrirvara.

Fundarritari

Skrifar fundargerðina

Fundir og fyrirlestrar umritaðir á íslensku með aðgreiningu þátttakenda, beint inn í málið.

Þýðandi og túlkur

Brúar tungumálin

Þýðing á yfir 50 tungumál og tvíhliða rauntímatúlkur milli læknis og sjúklings.

Aðstoðarmaður

Keyrir sama verkið hundrað sinnum

Flæði: vistaðar fyrirspurnakeðjur keyrðar yfir allt að 100 skjöl eða línur í einu, með töflu í niðurstöðu.

Persónuverndarfulltrúi

Skrifar skjölin sem eftirlitið biður um

Vinnsluskrá, persónuverndarstefna, öryggisráðstafanir, hagsmunamat, öryggisbrestaskýrsla og AI Act-skjöl úr stuttu viðtali.

Samstarfsfélagi

Svarar í spjalli vinnustaðarins

Merktu @ulf í rás eða beinum skilaboðum og hann svarar úr málum og skjölum sem þú hefur aðgang að.

Kveikt · deildin er mætt
Tvær útgáfur

ULF sem hentar þínum rekstri

Báðar útgáfur eru áskrift með föstu mánaðargjaldi. Þú kaupir engan vélbúnað og setur ekkert upp: við sjáum um vélina, uppfærslurnar og reksturinn, þú átt gögnin.

Við komum með vélina

Ulf Solo

Ulf-vél sett upp á þínum stað og rekin af okkur í áskrift.

  • Vélin fylgir áskriftinni, engin fjárfesting í vélbúnaði
  • Allt keyrir innan þíns eigin nets, engin gögn eða fyrirspurnir fara úr húsi
  • Virkar á einangruðu neti; uppfærslur, líkön og söfn berast á USB-lykli
  • Uppsetning, uppfærslur og rekstur í okkar höndum
Innlent ský

Ulf Net

Sama deild, hýst á íslenskum netþjónum og tilbúin samdægurs.

  • Gögnin eru eingöngu hjá þér og hýsingaraðila á Íslandi
  • Engin gögn fara úr landi eða til þriðja aðila
  • Enginn vélbúnaður á staðnum, tilbúið samdægurs
  • Aðgengilegt hvar sem starfsfólkið er
Faglegar aðgerðir & greiningar

Faglegar greiningar með einum skástriki

Sláðu inn „/“ og veldu tilbúna greiningu. ULF les málið og skilar faglegri úttekt á augabragði: almennar, læknisfræðilegar, lögfræðilegar og fjármálalegar aðgerðir, allt frá samantekt og tímalínu til SOAP-nótu, ICD-10, VSK-yfirferðar og áreiðanleikakönnunar. Stjórnendur geta bætt við eigin aðgerðum fyrir vinnustaðinn.

/samantekt/tímalína/áhætta /mótsagnir/tilfellismyndun/soap /icd10/mismunagreining/lyf /einföldun/næstuskref/ritskoðun /vsk/audittrail/taxrisks/covenants/dd
Faglegar aðgerðir
Faglegar greiningaraðgerðir með skástriki
Málastjórn · Hvelfing

Öll mál á einum öruggum stað

Hvelfingin heldur utan um mál (sjúklinga, skjólstæðinga eða dómsmál) með skráningum, skjölum, sjálfvirkri samantekt og hugtakaskýi. Faglegu greiningarnar vinna beint á gögnum hvers máls, þú spyrð gervigreindina um málið í innbyggðu spjalli, og þú getur lesið fyrir eða haldið fund beint inn í málið.

  • Mál með texta-, skjala- og myndaskráningum
  • Sjálfvirk samantekt og hugtakaský úr öllum skráningum
  • Innbyggt spjall um hvert mál
  • Lestu fyrir inn í málið: umritunin er leiðrétt með hliðsjón af skjölum málsins og yfirfarin
  • Fundur inni í máli: fundargerð með þátttakendum vistuð sem skráning
  • Sameiginlegar möppur vaktaðar og skjöl lesin sjálfkrafa inn í rétt mál
  • Útflutningur sem PDF eða JSON, með eða án yfirstrikunar
Hvelfing · málalisti
Málalisti í hvelfingu
Hvelfing · mál
Málayfirlit með samantekt
Vaktin · Samningavakt

Ulf vaktar málin þín — líka þegar þú ert annars staðar

Segðu Ulf á venjulegri íslensku hvað má ekki gerast án þess að þú vitir: „Láttu mig vita ef samanlagðir tímar fara yfir 500 klst“ eða „þegar svar berst frá Orkustofnun“. Ulf endurmetur skilyrðið í hvert sinn sem eitthvað bætist við málið og sendir þér skilaboð í spjallinu um leið og það verður uppfyllt — með tengli beint í málið.

  • Skilyrði skrifuð á mannamáli, engin forritun
  • Ulf metur stöðuna strax við stofnun — og sýnir hana jafnóðum (t.d. 437 af 500 klst)
  • Vaktin virkjast aðeins einu sinni — engin síendurtekin áreiti
  • Skilaboð frá Ulf í spjallinu með tilvísun í málið
  • Samningavakt: Ulf les samninginn einu sinni og skráir frestina, síðan minnir dagatalið á þá með fyrirvara, án þess að reikna dagsetningar með gervigreind
Hvelfing · Vaktin
Vaktin: skilyrði á mannamáli með stöðu hverrar vaktar
Spjall · skilaboð frá Ulf
Ulf sendir skilaboð þegar vakt virkjast
Spjall vinnustaðarins

Innanhússspjall með Ulf sem samstarfsfélaga

Rásir og bein skilaboð fyrir vinnustaðinn — allt innanhúss. Ulf er þátttakandi í spjallinu: merktu @ulf og hann svarar úr málum og skjalasöfnum með tilvísunum sem opna heimildina, eða spurðu @allar og hann leitar yfir öll aðgengileg mál í einu.

@ulf@allar
  • Rásir og bein skilaboð, engin erlend skýjaþjónusta
  • @ulf svarar með tilvísunum í mál og skjöl
  • @allar leitar yfir öll mál og dregur saman niðurstöðuna
  • Aðgangsstýring innbyggð: á rásum svarar Ulf aðeins um opin mál
Spjall · # duro-verkefnið
Ulf svarar spurningu í hópspjalli með tilvísun í mál
Nýtt · Flæði

Sama greiningin yfir hundrað skjöl í einu

Skrifaðu fyrirspurnina einu sinni, vistaðu hana sem flæði og keyrðu yfir heilan bunka: umsóknir, reikninga, samninga, sjúkraskrár eða línur í töflureikni. Hvert skref getur vísað í skjalasöfn, úrlausnasöfn og mál, og niðurstaðan kemur sem tafla sem þú límir beint í Excel.

  • Keðjur af skrefum, hvert með eigin fyrirspurn og heimildum
  • Inntak: skjöl, línur, málsgreinar, töflureiknislínur eða JSONL-færslur
  • Allt að 100 skrár í hverri keyrslu, staða hverrar skráar sýnd jafnóðum
  • Úttak sem tafla (TSV), samfelldur texti eða aðeins niðurstöður skrefanna
Flæði · skref
Flæði: vistað flæði með einu skrefi sem vísar í skjalasafn
Flæði · niðurstaða
Flæði: fimm færslur flokkaðar og niðurstaðan sýnd sem tafla
Spjall

Snjallt samtal sem skilur samhengið

Spjallaðu við ULF um hvað sem er. Hengdu við PDF, DOCX og myndir, fáðu svör með töflum og myndritum, og skiptu um líkan með einum smelli.

  • Sjálfvirk myndrit úr tölulegum gögnum (súlu-, línu- og kökurit)
  • Viðhengi: spurðu um skjöl og myndir beint í spjallinu
  • Veldu á milli líkana eftir hraða eða gæðum, og kveiktu á fagorðasöfnum fyrir læknisfræði eða skattamál
  • Straumað svar í rauntíma með snyrtilegri framsetningu
Spjall · myndrit
Spjall með línuriti
Íslensk málþekking

Íslenska sem dugar í daglegri vinnu

ULF er sérþjálfað fyrir íslensku og skrifar lipurt fagmál. Það er ekki gallalaust, en nógu gott fyrir daglega vinnu, og leggur sig fram um að finna ekki upp orð eða staðreyndir.

  • Góð tök á íslenskum beygingum, eintölu og fleirtölu
  • Eðlilegt orðalag, ekki stirð vélþýðing
  • Fagleg svör á íslensku innan heilbrigðis- og lögfræðisviðs
Spjall · íslenska
Spjall á íslensku með fagsvari
Þýðing

Þýddu á milli tungumála innanhúss

Þýddu texta hratt og örugglega án þess að senda hann í erlent ský. Veldu upprunatungumál og marktungumál og fáðu náttúrulega þýðingu á augabragði, á yfir 50 tungumálum.

  • Yfir 50 tungumál, með íslensku í öndvegi
  • Skiptu um tungumál og lestu þýðinguna upphátt
  • Engin gögn fara úr húsi
Þýðing
Þýðing úr íslensku á ensku
Túlkur

Tvíhliða túlkur fyrir lækni og sjúkling

Brúaðu tungumálabilið í viðtali. Hver setning er umrituð og þýdd jafnóðum og birt báðum aðilum. Læknir talar íslensku, sjúklingur sitt móðurmál.

  • Tal eða texti, sjálfvirk umritun og þýðing í rauntíma
  • Sérstök svæði fyrir lækni og sjúkling, hvort með sitt tungumál
  • Upplestur þýðingar fyrir betri samskipti
Túlkur · IS ↔ PL
Túlkur milli íslensku og pólsku
Skjalaleit · Úrlausnir

Spurðu skjölin þín beint, og úrlausnirnar líka

Hladdu upp PDF- og DOCX-skjölum í söfn og spurðu spurninga á mannamáli. ULF finnur svörin í þínum eigin skjölum og vísar í heimildir. Úrlausnasöfn, eins og úrskurðir yfirskattanefndar, koma tilbúin og leitin finnur fyrst rétta úrlausn og svo réttan kafla í henni.

  • Skipulögð skjalasöfn með leit yfir mörg skjöl
  • Svör með tilvísun í heimild og blaðsíðu
  • Opnaðu frumheimildina með einum smelli
  • Tvíþætt leit, orða- og merkingarleit með endurröðun, fyrir nákvæm svör úr stórum söfnum
  • Tilbúin úrlausnasöfn flutt inn á augabragði, líka á einangruðu neti
Skjalaleit
Skjalaleit í lyfjalöggjöf
Upptaka & fundir

Tal í texta og fundir með þátttakendum

Taktu upp eða hladdu upp hljóði og fáðu umritun á íslensku. Fundarhamur greinir á milli þátttakenda og skrifar fundargerð, og hægt er að laga greinarmerki og uppbyggingu sjálfvirkt. Sama upptaka virkar inni í máli í Hvelfingu.

  • Íslensk umritun beint í vafranum
  • Fundarupptaka með auðkenningu þátttakenda og sjálfvirkri fundargerð
  • Lagfærðu greinarmerki, hástafi og málsgreinar í einum smelli
Upptaka
Upptaka og umritun
Öryggi & persónuvernd

Viðkvæm gögn fara aldrei úr húsi

ULF er hannað fyrir umhverfi þar sem persónuvernd er ekki valkvæð. Við rekum vélina, þú átt gögnin. Allt keyrir á Ulf-vélinni hjá þér eða í innlendu skýi, engin erlend skýjaþjónusta og enginn þriðji aðili.

Gögnin verða eftir

Líkön, gögn og vinnsla eru öll á Ulf-vélinni hjá þér eða innanlands. Ulf Solo virkar jafnvel á einangruðu neti án nettengingar.

Dulkóðuð gögn

Samtöl, mál og skjöl eru geymd í dulkóðuðum gagnagrunni með sjálfvirkri afritun og endurheimt.

Aðgangsstýring

Innskráning með Active Directory vinnustaðarins, aðgreind gögn, opin og lokuð mál, notenda- og stjórnendahlutverk.

Yfirstrikun persónuupplýsinga

Kennitölur, nöfn og aðrar persónuupplýsingar yfirstrikaðar sjálfkrafa í útflutningi og um API, með íslenskum skynjurum.

Meira undir húddinu

Hannað til daglegrar notkunar

Stjórnborð

Notendur, líkön, svarstillingar, eigin skástriksaðgerðir og virknisaga á einum stað fyrir stjórnendur.

Myndasköpun

Búðu til myndir út frá texta beint í viðmótinu, án skýjaþjónustu.

Tíu tungumál í viðmóti

Viðmótið talar íslensku, ensku, norsku, sænsku, dönsku, þýsku, frönsku og fleira.

Sjálfvirk afritun

Innbyggð afritun og endurheimt með viðvörunum ef eitthvað bregst.

Ritskoðun & útflutningur

Flyttu mál út sem PDF, með eða án yfirstrikunar á viðkvæmu efni.

Talgervill

Láttu lesa svör og þýðingar upphátt með innbyggðum talgervli.

Samtalssaga

Öll samtöl vistuð, leitanleg og aðgreind fyrir hvern notanda.

Persónuverndarskjölin

Vinnsluskrá, persónuverndarstefna, öryggisráðstafanir, hagsmunamat, öryggisbrestaskýrsla og AI Act-skjöl skrifuð úr stuttu viðtali, út sem PDF eða Word.

API fyrir önnur kerfi

OpenAI-samhæfð gátt: spjall, umritun, þýðing, upplestur, yfirstrikun og leit fyrir sjúkraskrár-, mála- og bókhaldskerfi vinnustaðarins.

Sameiginlegar möppur

Ulf vaktar netmöppur vinnustaðarins og les ný skjöl sjálfkrafa inn í söfn og mál.

Uppfærslur á USB

Ný útgáfa, ný líkön og ný söfn berast á USB-lykli fyrir vélar sem mega aldrei tengjast netinu.

Fast mánaðargjald

Fast mánaðarlegt áskriftargjald fyrir allt kerfið, óháð notkun og fjölda notenda. Engir mælar og engir óvæntir reikningar.

Tilbúið til notkunar

Kveiktu á deildinni

Við komum með vélina, tengjum hana og kveikjum. Allt kerfið er á föstu mánaðargjaldi, óháð notkun eða fjölda notenda. Hafðu samband og við förum yfir hvor útgáfan, Ulf Solo eða Ulf Net, hentar betur.